Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   mið 27. júní 2018 14:01
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ed Sheeran var á bandi Íslands - Í landsliðbúningnum
Icelandair
Ed Sheeran er einn vinsælasti tónlistarmaður heims.
Ed Sheeran er einn vinsælasti tónlistarmaður heims.
Mynd: Getty Images
Einn vinsælasti tónlistarmaður heims, enski söngvarinn Ed Sheeran var á Íslandsvagninum í gær þegar liðið spilaði við Króatíu á Heimsmeistaramótinu í Rússlandi.

Ísland mætti Króatíu og þurfti sigur til þess að fara áfram í 16-liða úrslitin. Það gekk hins vegar ekki alveg hjá strákunum okkar. Eftir hetjulega baráttu féllu þeir úr leik.

Sheeran, sem gefið út hefur hvern smellinn á fætur öðrum, birti mynd af sér og félögum sínum á Instagram í gær þar sem hann er í íslenska landsliðsbúningnum.

Sheeran er með 23,6 milljón fylgjenda á Instagram.

Hér að neðan er myndin sem Sheeran birti í gær.





Athugasemdir
banner