Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 27. júní 2018 19:44
Ívan Guðjón Baldursson
Mexíkóar fögnuðu með Kóreubúum
Mynd: Getty Images
Mexíkó og Suður-Kóreu tókst að slá ríkjandi heimsmeistara Þýskalands úr riðlakeppninni í ár.

Mexíkó lagði Þjóðverja í fyrstu umferð og var staðan í riðlinum ótrúlega spennandi fyrir lokaumferðina.

Mexíkóar voru í efsta sæti með sex stig, svo komu Svíar og Þjóðverjar með þrjú stig og jafna markatölu.

Svíar gerðu sér lítið fyrir og völtuðu yfir Mexíkó í lokaleiknum sem þýddi að Þjóðverjum nægði sigur gegn Suður-Kóreu til að komast áfram og slá Mexíkó um leið úr keppni.

Þjóðverjum tókst þó óvænt ekki að skora gegn stigalausum Kóreubúum, sem skoruðu sjálfir tvö mörk undir lokin og knésettu heimsmeistarana við mikla ánægju Mexíkóa.

Eftir leikina brutust út mikil fagnaðarlæti og fögnuðu Mexíkóar með Kóreubúum, eins og hægt er að sjá hér fyrir neðan.





















Athugasemdir
banner
banner
banner
banner