Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 27. júní 2018 15:20
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Strippklúbbur við hliðina á hóteli enska landsliðsins
England mætir Belgíu á morgun.
England mætir Belgíu á morgun.
Mynd: Getty Images
Enska landsliðið í fótbolta spilar við Belgíu á HM í Rússlandi á morgun í lokaleik sínum í G-riðli, í hreinum úrslitaleik um efsta sætið í riðlinum. Jafntefli gæti nægt Englandi.

Leikurinn fer fram í Kalíníngrad en gistiaðstaða enska liðsins þar hefur vakið athygli.

Í frétt Mirror segir að hótel liðsins sé við hliðina á strippklúbbi við götu þar sem mikið er um að vera í miðbæ Kalíníngrad.

Hótelið er rétt hjá aðaltorgi Kalíníngrad þar sem stuðningsmenn munu drekka og skemmta sér langt inn í nóttina.

„Ég trúi því ekki að fótboltalið ákveði að gista þarna degi fyrir leik," sagði Ivan Torbinski, viðskiptamaður í Kalíníngrad, við Mirror.

„Það verður mikið um að vera og það verða mikil læti um nóttina. Pobedy-torg er augljós staður fyrir stuðningsmenn til að koma saman, drekka áfengi og skemmta sér."

„Strippklúbburinn opnaði nýlega og er mjög vinsæll. Mörg hótelherbergin eru með útsýni á hann."
Athugasemdir
banner