Tveimur leikjum var frestað í 3. deild karla í dag. KSÍ hefur gefið út nýja leiktíma á þessa leiki.
Leikmaður karlaliðs Stjörnunnar var í gær greindur með kórónuveiruna og í kjölfarið fór af stað vinna hjá smitrakningateyminu. Stjarnan er með teningar við KFG og Álftanes og var leikjum þessara liða í 3. deild frestað í dag.
Það er núna hins vegar búið að ákveða nýja leiktíma og verður spilað á morgun og hinn.
Nýir leiktímar
Íslandsmót – 3. deild karla
KFG - Ægir
Var: Laugardaginn 27. júní kl. 16.00 á Samsungvellinum (í dag)
Verður Mánudaginn 29. júní kl. 20.00 á Samsungvellinum
Íslandsmót – 3. deild karla
Álftanes - Sindri
Var: Laugardaginn 27. júní kl. 14.00 á Bessastaðavelli (í dag)
Verður Sunnudaginn 28. júní kl. 14.00 á Bessastaðavelli
Athugasemdir