Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 27. júní 2020 14:34
Ívan Guðjón Baldursson
Danmörk: Kjartan Henry lagði upp í sigri Vejle
Mynd: Getty Images
Vejle 2 - 0 Fredericia
1-0 Arbnor Mucolli ('43)
2-0 Leonel Montano ('88)

Kjartan Henry Finnbogason byrjaði á bekknum er Vejle fékk Fredericia í heimsókn í dönsku B-deildinni í dag.

Arbnor Mucolli kom Vejle yfir á 43. mínútu og fékk Kjartan Henry að spreyta sig á lokakafla leiksins.

Skömmu eftir innkomu sína lagði Kjartan upp mark fyrir Leonel Montano sem innsiglaði sigur Vejle.

Vejle er með átta stiga forystu á toppi deildarinnar. Eitt lið kemst upp í efstu deild.


Athugasemdir
banner
banner
banner