Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   lau 27. júní 2020 19:27
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Einkunnir Norwich og Man Utd: Krul og Maguire bestir
Krul var öflugur í marki Norwich.
Krul var öflugur í marki Norwich.
Mynd: Getty Images
Manchester United er komið í undanúrslit enska bikarsins eftir sigur á Norwich í framlengdum leik. Staðan var 1-1 að loknum venjulegum leiktíma, en Harry Maguire tryggði United sigurinn undir lok framlengingarinnar.

Hér að neðan má sjá einkunnagjöf Independent. Þar fá Tim Krul, markvörður Norwich, og Harry Maguire, fyrirliði Manchester United, hæstu einkunn eða 8.

Timm Klose, sem fékk rautt spjald, undir lok venjulegs leiktíma skorar ekki hátt.

Norwich: Krul 8, Aarons 7, Godfrey 7, Klose 4, Lewis 6, McLean 6, Tettey 5, Rupp 7, Buendia 6, Cantwell 8, Pukki 5.

Man Utd: Romero 5, Dalot 5, Bailly 6, Maguire 8, Shaw 7, Fred 7, McTominay 6, Mata 5, Fernandes 7, Lingard 5, Ighalo 7.
Athugasemdir
banner
banner