Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   lau 27. júní 2020 21:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Hakimi verður leikmaður Inter
Mynd: Getty Images
Bakvörðurinn Achraf Hakimi er að ganga í raðir Inter frá Real Madrid fyrir 40 milljónir evra. Verðið gæti hækkað svo um 5 milljónir evra.

Hakimi lék í dag sinn síðasta leik fyrir Dortmund er hann kom inn á sem varamaður í hálfleik í 4-0 tapi gegn Hoffenheim í lokaumferð þýsku úrvalsdeildarinnar.

Hakimi hefur verið í láni hjá Dortmund undanfarin tvö tímabil, en næsta skref hans verður á Ítalíu.

Hinn áreiðanlegi Fabrizio Romano segir frá því í kvöld að þetta sé allt saman klappað og klárt. Hakimi verður formlega leikmaður Inter í næstu viku, en ekki er ákvæði í samningi hans að Real Madrid geti keypt hann aftur fyrir ákveða upphæð.

Hakimi er 21 árs gamall og þykir sérstaklega góður sóknarlega.


Athugasemdir
banner
banner