Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   lau 27. júní 2020 07:00
Auglýsingar
Tökum leik - Upptaka og myndbandsgerð fyrir lið og leikmenn
Mynd: Getty Images
Tökum leik er íslensk þjónusta með það markmið að bjóða þjálfurum, leikmönnum, stuðningsmönnum, foreldrum og öðrum velunnurum uppá upptökur frá leikjum sinna liða á viðráðanlegu verði.

Upptökuvélarnar eru búnar tveimur linsum sem taka upp í HD og hafa 180° sjónarhorn á völlinn. Þá eru vélarnar búnar gervigreind sem fylgir boltanum eftir svo þú getur verið viss um að upptökumaðurinn sofnar aldrei á verðinum og missi af mikilvægu atviki.

Tökum leik býður uppá myndbandsgerð fyrir lið og leikmenn, bæði leikjum sem Tökum leik tekur upp eða úr aðsendum leikjum. Í boði er myndbandsgerð frá hápunktum (highlights) leiksins, öllu því helsta frá ákveðnum leikmanni í einum leik eða highlight myndband fyrir leikmenn eða lið úr fjölda leikja.

Þá býður Tökum leik einnig uppá tölfræði úr leikjum bæði fyrir allt liðið í heild eða fyrir hvern leikmann liðsins. Tölfræði sem boðið er upp á er til að mynda sendingar, heppnaðar sendingar, sendingahlutfall, lykilsendingar, fyrirgjafir, heppnaðar fyrirgjafir, unnin skallaeinvígi, unnir boltar, skot, skot á mark, brot og fleira.

Stök upptaka á leik er á afsláttarverði í júlí – 12.990 kr. Þá er mælt með þeim möguleika að koma sér saman við þjálfara andstæðingsins um að skipta kostnaði upptökunnar sín á milli, hafi báðir aðilar áhuga á upptöku

Hægt er að sjá nánari upplýsingar á www.tokumleik.is, á Instagram: og á Facebook.

Fyrir áhugasama er hér myndband sem Tökum leik gerði fyrir Bjarna Þór Hafstein leikmann Breiðabliks:


Athugasemdir
banner
banner