Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 27. júní 2020 13:07
Ívan Guðjón Baldursson
Watford rannsakar afmælisteiti Andre Gray
Mynd: Getty Images
Watford hefur hrint af stað rannsókn vegna teitis sem var haldið í heimahúsi Andre Gray, sóknarmanns liðsins.

Gray hélt afmælisteiti í gærkvöldi. Hann er orðinn 29 ára gamall og hefur gert tvö mörk í 24 leikjum á tímabilinu.

Adam Leventhal, fréttamaður The Athletic, greinir frá þessu á Twitter.

„Watford er að rannsaka teiti sem átti sér stað heima hjá Andre Gray í gærkvöldi. Það voru um 20 manns viðstaddir og var Domingos Quina einnig á svæðinu," skrifaði Leventhal.

Quina er 20 ára gamall og hefur aðeins komið við sögu í fjórum leikjum á tímabilinu.

Leikmennirnir geta búast við sekt frá félaginu.
Athugasemdir
banner
banner
banner