Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   mán 27. júlí 2020 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
„Býst við að Jack Grealish verði fullur með mér í kvöld"
Jack Grealish.
Jack Grealish.
Mynd: Getty Images
Jack Grealish skoraði mark Aston Villa í gær þegar liðið gerði 1-1 jafntefli við West Ham í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar.

Aston Villa hélt sér uppi með stiginu og verður áfram í deild þeirra bestu á næstu leiktíð.

Hinn 24 ára gamli Grealish hefur verið besti maður Villa á tímabilinu og miklar vangaveltur eru um framtíð hans. Hann hefur til að mynda verið sterklega orðaður við Manchester City og Manchester United.

Dean Smith, stjóri Aston Villa, vildi ekki mikið tjá sig um Grealish, annað en það að þeir myndu skemmta sér vel eftir leikinn.

Hann sagði: „Ég er búinn að tapa röddinni. Ég býst við að Jack Grealish muni verða fullur með mér í kvöld. Það er það eina sem ég get sagt. Ég mun tala við eigendurna á morgun (í dag)."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner