Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 27. júlí 2020 05:55
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
England í dag - Fulham tekur á móti Cardiff í mikilvægum leik
Úr leik hjá Swansea og Cardiff. Bæði þessi lið eru í umspilinu.
Úr leik hjá Swansea og Cardiff. Bæði þessi lið eru í umspilinu.
Mynd: Getty Images
Það verður leikið í undanúrslitum umspilsins í Championship-deildinni í kvöld.

Cardiff og Fulham eru að berjast um sæti í ensku úrvalsdeildinni á næstu leiktíð. Um fyrri leik liðanna er að ræða en hann fer fram í Wales á heimavelli Cardiff.

Fulham hafnaði í fjórða sæti Championship-deildarinnar og Cardiff í því fimmta. Átta stigum munaði á liðinu.

Leikurinn í kvöld hefst klukkan 18:45 og verður sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 2.

mánudagur 27. júlí

ENGLAND: Championship, Playoffs
18:45 Cardiff City - Fulham (Stöð 2 Sport 2)
Athugasemdir
banner
banner