Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 27. júlí 2020 20:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Lengjudeildin: Þrenna frá Gary Martin gegn Þrótti
Lengjudeildin
Gary Martin.
Gary Martin.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍBV 3 - 0 Þróttur R.
1-0 Gary John Martin ('42 )
2-0 Gary John Martin ('85 )
3-0 Gary John Martin ('90 )
Lestu nánar um leikinn

Gary Martin skoraði þrennu fyrir ÍBV er liðið lagði Þrótt að velli í Lengjudeild karla. Leikurinn fór fram í Vestmannaeyjum.

Eyjamenn komust yfir undir lok fyrri hálfleiks þegar Martin skoraði með það sem átti að vera fyrirgjöf.

Þróttarar voru inn í leiknum alveg fram á 85. mínútu en þá skoraði Gary sitt annað mark. Hann fullkomnaði svo þrennuna í uppbótartímanum.

Lokatölur 3-0 fyrir ÍBV sem fer á toppinn í Lengjudeildinni, alla vega í skamma stund að minnsta kosti. Þróttur er í næst neðsta sæti með aðeins eitt stig eftir átta leiki. Liðið er búið að skora þrjú mörk í fyrstu átta leikjum sínum.
Athugasemdir
banner
banner
banner