Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 27. júlí 2020 16:00
Magnús Már Einarsson
Sidibe ekki áfram hjá Everton
Mynd: Getty Images
Everton ætlar ekki að nýta sér möguleikann á að kaupa franska hægri bakvörðinn Djibril Sidibe.

Hinn 27 ára gamli Sidibe var á láni frá Mónakó á nýliðnu tímabili.

Sidibe spilaði 25 leiki í ensku úrvalsdeildinni og var átján sinnum í byrjunarliði.

Carlo Ancelotti, stjóri Everton, hefur boðað breytingar fyrir næsta tímabil og möguleiki er á að hann bæti nýjum hægri bakverði við hópinn í sumar til að berjast við Seamus Coleman um stöðuna.


Athugasemdir
banner