Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 27. júlí 2020 16:30
Magnús Már Einarsson
Wilder: Við þurfum að fá betri leikmenn
Mynd: Getty Images
Chris Wilder, stjóri Sheffield United, segir mikilvægt að styrkja leikmannahópinn vel í sumar.

Nýliðarnir komu skemmtilega á óvart á nýliðnu tímabili í ensku úrvalsdeildinni og voru lengi vel í baráttu um Evrópusæti.

Þreyta og lítill leikmannahópur settu strik í reikninginn síðustu vikur tímabilsins og Sheffield United endaði í 9. sæti eftir tap gegn Southampton í lokaumferðinni í gær.

„Við verðum að koma sterkari til baka á næsta ári," sagði Wilder eftir leik í gær.

„Við þurfum að versla vel í sumar, bæta leikmennina sem við erum með hérna og fá betri leikmenn hingað ef við viljum festa okkur í sessi sem félag í ensku úrvalsdeildinni."
Athugasemdir
banner
banner
banner