Frakkland og Þýskalands mætast í undanúrslitum Evrópumótsins á Englandi í dag. Leikurinn fer fram á heimavelli MK Dons.
Frakkland vann tvo leiki og gerði eitt jafntefli í riðlakeppninni en Ísland var fyrsta liðið til að stöðva Frakkland eftir sextján leikja sigurgöngu liðsins.
Frakkar unnu þá Hollendinga í 8-liða úrslitunum. Þýskaland vann á meðan alla leiki sína í riðlakeppninni og þá var liðið ekki í vandræðum með Austurríki í 8-liða úrslitunum.
Sigurvegarinn í kvöld mætir Englandi í úrslitaleiknum á sunnudag.
Leikur dagsins:
19:00 Þýskaland - Frakkland
Athugasemdir