Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 27. ágúst 2021 12:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ætlar ekki að selja Richarlison - Engu svarað um James og Kean
Rafa Benítez
Rafa Benítez
Mynd: EPA
„Við erum ekki að íhuga að selja Richarlison," sagði Rafa Benítez, stjóri Everton, á blaðamannafundi í dag.

„Hann er okkar leikmaður og við erum ánægðir með hann og glaðir að hann er hér. Vonandi mun hann skora fullt af mörkum fyrir okkur á tímabilinu," bætti Benítez við.

Richarlison hefru verið orðaður við PSG en Everton virðist ekki líklegt til að selja leikmanninn.

Benítez var einnig spurður út í framtíð þeirra Moise Kean og James Rodriguez. Benítez náði að skauta svolítið framhjá þeirri spurningu.

„Við erum með nokkra leikmenn sem menn vita að eru góðir leiklmenn og gætu verið í ákveðinni umræðu. Það eru sögusagnir í gangi en sem þjálfarar verðum við að einbeita okkur að því svem við höfum."

„Við erum með leikmennina okkar hér og það er mikilvægtur leikur gegn Brighton á morgun,"
sagði Benítez.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner