Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 27. ágúst 2021 21:00
Victor Pálsson
Líklega síðasta tímabil Joaquin
Mynd: Getty Images
Joaquin, leikmaður Real Betis, er að öllum líkindum að spila sitt síðasta tímabil sem atvinnumaður í knattspyrnu.

Spænskir miðlar fjalla um þetta í dag en Joaquin er fertugur að aldri og leikur með Real Betis í efstu deild Spánar.

Joaquin hefur spilað með nokkrum liðum á sínum ferli eða Betis, Valencia, Malaga og Fiorentina.

Vængmaðurinn vakti fyrst athygli með Betis og var keyptur til Balencia árið 2006. Þaðan hélt leikmaðurinn til Malaga og síðar til Ítalíu í tvö ár.

Hann skrifaði nokkuð óvænt undir nýjan samning við Betis fyrr á þessu ári en margir héldu að hann væri að spila sitt síðasta tímabil með félaginu. Samtals lék Joaquin 30 leiki með Betis á síðasta tímabili.

Joaquin verður 41 árs gamall í júlí á næsta ári en hann lék 51 landsleik fyrir Spán frá 2002 til 2007.

Miðað við fréttir á Spáni þá er þetta síðasta tímabil leikmannsins en hann hefur komið við sögu í tveimur leikjum Betis nýlega.

Joaquin er uppalinn hjá Betis og gekk aftur í raðir liðsins árið 2015.

Athugasemdir
banner
banner
banner