Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 27. ágúst 2021 12:06
Elvar Geir Magnússon
PSG skoðar möguleika á að fá Haaland fyrir gluggalok
Mynd: Getty Images
Matt Law, blaðamaður Daily Telegraph, segir að Paris St-Germain sé að skoða möguleika á því að kaupa norska sóknarmanninn Erling Haaland frá Borussia Dortmund áður en glugganum verður lokað.

Það myndi eyðileggja áætlanir félagana stóru í Manchester sem bæði ætla að reyna að kaupa leikmanninn næsta sumar.

Það eru miklar hræringar á félagaskiptamarkaðnum en Real Madrid er í viðræðum við PSG um möguleg kaup á Kylian Mbappe sem vill fara til spænska stórliðsins.

Sérfræðingar telja hæpið að PSG geti keypt Haaland svona seint í glugganum en forráðamenn franska félagsins telja að það sé þó tilraunarinnar virði.
Athugasemdir
banner
banner
banner