Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 27. ágúst 2021 17:02
Elvar Geir Magnússon
Ronaldo sendir kveðjubréf til stuðningsmanna Juventus
Ronaldo kveður stuðningsmenn Juventus.
Ronaldo kveður stuðningsmenn Juventus.
Mynd: Getty Images
„Í dag kveð ég ótrúlegt félag, það stærsta á Ítalíu og eitt það stærsta í allri Evrópu. Ég gaf hjarta mitt og sál fyrir Juventus og ég mun alltaf elska borgina Tórínó."

Svona hefst sérstakt kveðjubréf Cristiano Ronaldo til stuðningsmanna Juventus en hann hefur verið keyptur til Manchester United.

Ronaldo segist alltaf hafa lagt sig allan fram fyrri stuðningsmenn Juventus.

„Við getum horft til baka og áttað okkur á því að við afrekuðum frábæra hluti. Við fengum ekki allt sem við vildum en saman skrifuðum við ansi fallega sögu. Ég verð alltaf einn af ykkur og þið eruð hluti af minni sögu. Þið verðið alltaf í hjarta mínu."

Ronaldo var þrjú ár hjá Juventus og vann ítalska meistaratitilinn í tvígang og bikartitilinn einu sinni. Honum tókst þó ekki að ná því markmiði að vinna Meistaradeildina með liðinu.


Athugasemdir
banner
banner