Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 27. ágúst 2021 17:59
Victor Pálsson
Staðfestir að Mbappe vilji komast burt
Mynd: Getty Images
Leonardo, yfirmaður knattspyrnumála Paris Saint-Germain, hefur staðfest það að Kylian Mbappe vilji yfirgefa félagið.

Real Madrid er að reyna að fá franska landsliðsmanninn en PSG hefur nú þegar hafnað einu tilboði í leikmanninn.

PSG mun ekki koma í veg fyrir brottför Mbappe samkvæmt Leonardo en tilboðið þarf hins vegar að henta franska félaginu.

„Kylian Mbappe vill fara, það er ansi ljóst. Ef Real Madrid býður í hann... Sem virðist vera augljóst þá er ég að koma hlutunum á hreint," sagði Leonardo.

„Við getum ekki breytt okkar plönum viku fyrir lok gluggans. Ef hann vill fara þá stöðvum við hann ekki en þetta mun ganga fyrir sig á okkar hátt."

Mbappe er 22 ára gamall heimsmeistari en það er draumur hans að spila með Real og hefur hann sagt það opinberlega.
Athugasemdir
banner
banner