Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 27. ágúst 2021 20:27
Victor Pálsson
Þýskaland: Dramatík undir lokin er Haaland tryggði Dortmund sigur
Mynd: EPA
Borussia D. 3 - 2 Hoffenheim
1-0 Giovanni Reyna ('49 )
1-1 Christoph Baumgartner ('61 )
2-1 Jude Bellingham ('69 )
2-2 Munas Dabbur ('90 )
3-2 Erling Haland ('90 )

Borussia Dortmund vann sinn annan sigur í þýsku Bundesligunni í sumar í kvöld er liðið mætti Hoffenheim á heimavelli.

Dortmund tapaði seinasta leik sínum óvænt 2-1 gegn Freiburg eftir að hafa sigrað Frankfurt í fyrsta leik.

Þeir gulklæddu höfðu betur með þremur mörkum gegn tveimur og vantaði ekki upp á dramatíkina undir lokin.

Hoffenhei jafnaði metin á 90. mínútu í 2-2 en mínútu seinna skoraði Erling Haaland sigurmark Dortmund og lokastaðan 3-2.

Dortmund fer á toppinn í bili með þessum sigri en önnur lið fyrir neðan eiga þó leiki til góða.

Athugasemdir
banner
banner
banner