„Tilfinningin er mjög góð eins og gefur að skilja. Þetta var ógeðslega gaman," sagði Lára Kristín Pedersen, miðjumaður Vals, eftir sigur gegn Breiðabliki í úrslitaleik Mjólkurbikarsins.
Valur er bikarmeistari í fyrsta sinn í ellefu ár. Það var kominn tími á þennan titil.
Valur er bikarmeistari í fyrsta sinn í ellefu ár. Það var kominn tími á þennan titil.
Lestu um leikinn: Breiðablik 1 - 2 Valur
„Mér fannst við frekar rólegar þegar við fórum inn í hálfleikinn. Við vissum hvað við þurftum að laga. Mér fannst við gera. Við svöruðum vel í seinni hálfleiknum, algjörlega."
„Við vorum að brasa smá í fyrri hálfleik en mér fannst við ná að laga það í seinni."
Hvernig er að ná loksins að landa þessum titli fyrir þetta félag?
„Mjög gott. Við vorum allar meðvitaðar um að það væri langt síðan þetta hefði gerst á Hlíðarenda. Þetta er ofboðslega skemmtilegt," segir Lára.
Allt viðtalið er hér að ofan.
Athugasemdir