Carlo Ancelotti þjálfari Real Madrid svaraði spurningum varðandi framtíð Marco Asensio og Dani Ceballos sem eru í leikmannahópi Real Madrid.
Asensio hefur verið orðaður við Manchester United og Ceballos við smærri lið á Spáni en Ancelotti vill halda þeim báðum.
„Ég held að Asensio sé að skoða í kringum sig. Ef hann fer ekki þá verður hann 100% leikmaðurinn minn og leikmaður Real Madrid í september," sagði Ancelotti.
„Ef við fáum gott tilboð í Marco Asensio þá munum við skoða það en ef hann fer þá munum við ekki kaupa nýjan leikmann því við þurfum þess ekki.
„Ceballos verður áfram hjá félaginu, ég mun þurfa hann á tímabilinu."
Asensio og Ceballos eru báðir 26 ára gamlir og með eitt ár eftir af samningi við Real Madrid.
Asensio skoraði 12 mörk í 42 leikjum með Real á síðustu leiktíð á meðan Ceballos tók þátt í 18 leikjum.
Á nýju tímabili er Asensio búinn að spila í einum leik og Ceballos í þremur.