Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
   lau 27. ágúst 2022 18:03
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Láki: Hvorugt liðið vildi tapa leiknum
Lengjudeildin
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Á endanum var þetta sanngjarnt jafntefli fannst mér," sagði Þorlákur Árnason, Láki, þjálfari Þórs eftir markalaust jafntefli gegn Aftureldingu á Akureyri í dag.


Lestu um leikinn: Þór 0 -  0 Afturelding

„Fyrri hálfleikur var þokkalega opinn, við fengum rosalega góðar opnanir til þess að gera betur og klára skyndisóknir en svo náði Afturelding að leysa það hjá sér í seinni hálfleik og hann var mjög lokaður og örugglega frekar leiðinlegur," sagði Láki.

Það leit út fyrir að liðin hafi verið að spila uppá jafnteflið í síðari hálfleik.

„Afturelding er búið að vera eitt besta liðið í seinni umferðinni og fengu inn tvo mjög sterka leikmenn, einn Belga og einn Spánverja. Við erum búnir að spila vel í seinni umferðinni, mér fannst þetta bara tvö góð lið. Það voru gæði í fyrri hálfleiknum en á endanum var eins og hvorugt liðið vildi tapa leiknum,"

Láki var svekktur að liðið hafi ekki skorað nokkur mörk í fyrri hálfleik.

„Bjarni fékk besta færi leiksins, einn á móti markmanni og enginn nálægt honum. Afturelding fékk 2-3 góð færi þar sem Aron markvörðu gerði vel. Ég var svekktastur yfir því að ná ekki að klára skyndisóknirnar í fyrri hálfleik, þeir voru galopnir í fyrri," sagði Láki.


Athugasemdir
banner
banner
banner