Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 27. ágúst 2022 15:08
Ívan Guðjón Baldursson
Sjáðu glæsilegt mark Trent og klúður Salah fyrir opnu marki
Mynd: EPA

Liverpool er 5-0 yfir í hálfleik gegn nýliðum Bournemouth í ensku úrvalsdeildinni og var nóg af fjöri í fyrri hálfleik, þó öll færin hafi verið í átt að sama markinu.


Trent Alexander-Arnold skoraði glæsilegt mark með mögnuðu skoti utan vítateigs sem er líklega fallegasta mark tímabilsins til þessa.

Fyrir það hafði Mohamed Salah klúðrað ótrúlegu dauðafæri þar sem hann var nokkra metra frá galopnu marki en setti boltann yfir.

Salah teygði sig í boltann með vinstri fæti í stað þess að nota hægri, hrikalegt klúður fyrir mann í hans gæðaflokki.

Sjáðu markið hjá Trent Alexander-Arnold
Sjáðu ótrúlegt klúður Mohamed Salah


Athugasemdir
banner
banner
banner