Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
Jökull: Þeir voru frábærir - Við áttum kannski ekkert skilið úr þessum leik
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
banner
   lau 27. ágúst 2022 18:36
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Steinþagði í hálfleik - „Besta félag sem ég hef unnið fyrir"
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Tifinningin er frábær eins og alltaf þegar þú vinnur titla, Valur hefur ekki unnið titilinn í ellefu ár þannig að þetta skiptir miklu máli fyrir félagið líka," sagði Pétur Pétursson, þjálfari Vals, eftir sigur á Breiðabliki í bikarúrslitaleik í dag.

Lestu um leikinn: Breiðablik 1 -  2 Valur

„Ég er búinn að horfa á þetta í fimm ár, á fimmta ári tókst það. Hjá okkur hefur verið markmiðið að vinna tvöfalt, að vinna bikarinn tókst núna."

„Ég hef ekki hugmynd um það,"
sagði Pétur aðspurður hvað hefði vantað hjá Val til að klára bikarinn á þeim árum sem hann hefur verið þjálfari liðsins.

„Mér fannst við svolítið rólegar í fyrri hálfleik en í seinni hálfleik fórum við og pressuðum og gerðum eins og Valsliðið hefur verið að gera. Þær gerðu það frábærlega stelpurnar."

Pétur segist ekki hafa sagt neitt í hálfleik. „Ég steinþagði bara, þær gerðu þetta bara sjálfar."

„Það er mjög gaman að vera í Val, besta félag sem ég hef unnið fyrir."

„Í kvöld er allt leyfilegt, það er landsliðsverkefni framundan, frí næstu tólf daga í deildinni þannig þær geta gert það sem þær vilja."


Pétur segir þó að það sé ekkert frí framundan. „Nei nei, það er æfing á mánudaginn."
Athugasemdir
banner
banner
banner