Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
   lau 27. ágúst 2022 17:08
Kári Snorrason
Úlfur Jökuls: Völtum yfir þá
Lengjudeildin
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fjölnir vann flottan sigur á Selfoss fyrr í dag leikar enduðu 4-1 fyrir Fjölni. Staðan var 1-1 í hálfleik en í síðari hálfleik tóku Fjölnir yfir leikinn og skoruðu 3 mörk. Úlfur Arnar Jökulsson var mjög sáttur með liðið eftir leik.

Lestu um leikinn: Fjölnir 4 -  1 Selfoss

„Ég er ánægður með strákana, við vorum ekki alveg nógu ánægðir með fyrri hálfleikinn, við vorum samt að ágætis færi en við vorum ekki að sýna þá spilamennsku sem við vildum sýna. Við áttum stutt og gott spjall í hálfleik og ég er ótrúlega stoltur af strákunum hvernig þeir svöruðu í seinni hálfleik. Frá fyrstu sekúndu í seinni háflleik fannst mér bara vera eitt lið á vellinum og við bara völtum yfir þá."

Staðan var jöfn í hálfleik en hvað breyttist?

„Við færðum til í stöðum og breyttum aðeins shapeinu í uppspilinu og það lukkaðist vel. Strákarnir stigu líka upp, fóru að verða miklu djarfari."

Júlíus Mar Júlíusson kemur inná og skorar fyrsta mark leiksins, hvernig leikmaður er Júlíus?

„Júlli er hávaxinn og röskur miðað við að vera hávaxinn leikmaður hann er tæknilega mjög góður, með frábæra sendingargetu og rosalegur karakter, jákvæð og sterk orka í kringum hann, hann er svo sannarlega framtíðarmaður í þessu liði."

Viðtalið má sjá í heild sinni hér fyrir ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner