Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 27. september 2021 21:17
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Trent ferðaðist ekki með Liverpool til Portúgal
Mynd: Getty Images
Liverpool mætir Porto í Meistaradeild Evrópu á morgun.

Trent Alexander-Arnold hægri bakvörður liðsins missti af tveimur leikjum vegna veikinda en var mættur í byrjunarliðið um helgina er liðið gerði 3-3 jafntefli gegn Brentford.

Sky Sports gaf honum lægstu einkunn fyrir frammistöðuna sína í leiknum.

Hann æfði á æfingasvæði Liverpool í dag en ferðaðist ekki með liðinu til Portúgal sem bendir til þess að hann muni ekki taka þátt í leik morgundagsins.
Athugasemdir
banner
banner