Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   þri 27. september 2022 10:00
Hafliði Breiðfjörð
Ceské Budejovice
Hvaða athöfn er hjá Adam áður en hann fer á völlinn?
Hvað er í gangi?
Hvað er í gangi?
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Adam Ingi Benediktsson er varamarkvörður U21 landsliðs Íslands sem mætir Tékklandi í umspili um sæti á EM í Ceské Budejovice í Tékklandi í dag. 

Hann er markvörður Trollhättan í Svíþjóð þar sem hann spilar á láni frá Gautaborg.


Adam Ingi vakti athygli hjá Fótbolta.net í Tékklandi í gær fyrir athöfn sem hann virðist framkvæma áður en hann gengur inn á völlinn til að hefja æfingu á keppnisvellinum.

Myndir af þessu má sjá hér  að neðan en hann settist við hliðarlínuna, setti hendurnar inn á völlinn og strauk sér í framan.

Fyrri leik liðanna lauk með 1 - 2 sigri Tékka á Víkingsvelli á föstudaginn og því ljóst að Ísland verður að vinna hér í Tékklandi.

Fótbolti.net er Tékklandi og við færum ykkur beina textalýsingu og viðtöl um leið og leik lýkur.


Athugasemdir
banner
banner
banner