Guehi vill fara til Liverpool - Viðræður við Gordon ganga illa - Man Utd skoðar stjóra
   fös 27. september 2024 20:22
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Benzema frábær í sigri Al-Ittihad - Ronaldo tryggði Al-Nassr sigurinn
Mynd: Getty Images

Al-Nassr og Al-Ittihad unnu í Sádí-Arabíu í dag.


Fyrr í dag innsiglaði Ronaldo sigur Al-Nassr þegar hann skoraði úr vítaspyrnu snemma í síðari hálfleik gegn Al-Wehda. Sadio Mane lagði upp fyrra mark liðsins á Angelo í 2-0 sigri.

Al-Ittihad lenti undir gegn Al-Khaleej en snemma í seinni hálfleik jafnaði Karim Benzema metin eftir undirbúning Hassem Aouar. Aouar var aftur á ferðinni stuttu síðar þegar hann kom liðinu í 2-1.

Steven Bergwijn skoraði síðan sitt fyrsta mark fyrir félagið áður en Benzema lagði upp síðasta mark liðsins á Hamed Al Ghamdi, 4-1 lokatölur.

Leikmenn á borð við Merih Demiral, Franck Kessie, Riyad Mahrez og Ivan Toney voru í byrjunarliði Al-Ahli sem tapaði 1-0 gegn Al-Qadisiya. Al-Ittihad er á toppnum með 12 stig, Al-Nassr í 3. sæti með 11 stig og Al-Ahli í 7. sæti með sjö stig.


Athugasemdir
banner
banner