Guehi vill fara til Liverpool - Viðræður við Gordon ganga illa - Man Utd skoðar stjóra
   fös 27. september 2024 12:00
Elvar Geir Magnússon
Framkvæmdastjóri Newcastle með ólæknandi krabbamein
Darren Eales hættir sem framkvæmdastjóri Newcastle.
Darren Eales hættir sem framkvæmdastjóri Newcastle.
Mynd: Getty Images
Darren Eales framkvæmdastjóri Newcastle United hefur greinst með ólæknandi blóðkrabbamein.

Ealser er 52 ára og hefur starfað fyrir Newcastle frá ágúst 2022. Hann mun hætta störfum vegna þessara veikinda en þó sinna starfinu þar til eftirmaður hans hefur verið ráðinn.

Í yfirlýsingu frá Newcastle segir Eales að það hafi verið forréttindi að starfa fyrir félagið en hann muni láta sína heilsu og fjölskylduna vera í forgangi.

Yasir Al-Rumayyan stjórnarformaður Newcastle þakkar Eales fyrir hans framlag.

„Við öll sem tengjumst Newcastle erum sorgmædd vegna þessara tíðinda. Við óskum honum og fjölskyldu hans alls hins besta. Hann mun halda áfram að fá allan stuðning okkar," segir Al-Rumayyan.
Athugasemdir
banner
banner