Victor Boniface, framherji Leverkusen, hefur farið virkilega vel af stað með liðinu á þessari leiktíð.
Þessi 23 ára gamli nígeríski framherji hefur skorað fjögur mörk í sex leikjum en hann skoraði 21 mark í 34 leikjum á síðustu leiktíð. Hann gekk til liðs við Leverkusen frá belgíska liðinu Union SG í fyrra.
Hann segist ekki hafa mikinn áhuga á að spila í ensku úrvalsdeildinni en hann hefur verið orðaður við Chelsea.
„Nei, ég fíla ekki ensku úrvalsdeildina. Ég hef verið að tala um það meira segja áður en ég kom til Evrópu. Ég er ekki að segja ef frábært lið í úrvalsdeildinni myndi hafa samband að ég myndi ekki fara. En ef ég ætti að velja tvö lönd þar sem ég vil búa og spila væri það Þýskaland og Spánn," sagði Boniface.
Athugasemdir