Guehi vill fara til Liverpool - Viðræður við Gordon ganga illa - Man Utd skoðar stjóra
   fös 27. september 2024 16:30
Elvar Geir Magnússon
Luis Díaz verið algjörlega framúrskarandi
Luis Díaz.
Luis Díaz.
Mynd: Getty Images
Luis Díaz vængmaður Liverpool hefur farið fantavel af stað á tímabilinu og hlotið verðskuldað lof.

Craig Hignett sparkspekingur BBC fer fögrum orðum um kólumbíska landsliðsmanninn.

„Hann hefur verið algjörlega magnaður, það eru ekki bara mörkin sem hann skorar heldur hvað hann er að skapa mikið fyrir liðið og hafa mikil áhrif í leikjum," segir Hignett.

„Hann hefur verið leiftrandi og í mínum huga hefur hann staðið upp úr á tímabilinu. Sóknarleikurinn hefur verið framúrskarandi hjá honum en hann skilar sér líka til baka, hleypur og vinnur vinnuna sem sóknarmenn vilja oftast ekki vinna. Hann er alltaf til í að hlaupa og leggja sig fram."

„Þegar þú varst með Sadio Mane, Mohamed Salah og Roberto Firmino frammi þá skoruðu vængmennirnar meira en fremsti maður. Það er að verða svoldið þannig með Díaz og Salah."

„Það yrði stórkostlegt ef Díaz nær 20 mörkum á tímabilinu. Hann virðist beittari og á möguleika á því. Það voru vandamál utan vallar hjá honum á síðasta tímabili og það tók einhvern toll en hann hefur verið flugbeittur á þessu tímabili."

Liverpool heimsækir Úlfana í síðdegisleiknum á morgun klukkan 16:30 en Liverpool situr í öðru sæti deildarinnar.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Man City 5 4 1 0 13 5 +8 13
2 Liverpool 5 4 0 1 10 1 +9 12
3 Aston Villa 5 4 0 1 10 7 +3 12
4 Arsenal 5 3 2 0 8 3 +5 11
5 Chelsea 5 3 1 1 11 5 +6 10
6 Newcastle 5 3 1 1 7 6 +1 10
7 Brighton 5 2 3 0 8 4 +4 9
8 Nott. Forest 5 2 3 0 6 4 +2 9
9 Fulham 5 2 2 1 7 5 +2 8
10 Tottenham 5 2 1 2 9 5 +4 7
11 Man Utd 5 2 1 2 5 5 0 7
12 Brentford 5 2 0 3 7 9 -2 6
13 Bournemouth 5 1 2 2 5 8 -3 5
14 West Ham 5 1 1 3 5 9 -4 4
15 Leicester 5 0 3 2 6 8 -2 3
16 Crystal Palace 5 0 3 2 4 7 -3 3
17 Ipswich Town 5 0 3 2 3 8 -5 3
18 Southampton 5 0 1 4 2 9 -7 1
19 Everton 5 0 1 4 5 14 -9 1
20 Wolves 5 0 1 4 5 14 -9 1
Athugasemdir
banner
banner