Guehi vill fara til Liverpool - Viðræður við Gordon ganga illa - Man Utd skoðar stjóra
banner
   fös 27. september 2024 11:00
Elvar Geir Magnússon
Upphitunarpakki - Selfoss sigurstranglegri í úrslitaleiknum
Bjarni Jóhannsson þjálfar Selfoss og Eggert Gunnþór Jónsson þjálfar KFA.
Bjarni Jóhannsson þjálfar Selfoss og Eggert Gunnþór Jónsson þjálfar KFA.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Í kvöld klukkan 19:15 mætast Selfoss og KFA í úrslitaleik Fótbolti.net bikarsins, bikarkeppni neðri deilda, á Laugardalsvelli. Leikurinn verður sýndur beint á Stöð 2 Sport 5.

Miðasala á leikinn

Víðir er handhafi bikarsins, en leikið var í fyrsta sinn um bikarinn á síðasta keppnistímabili.

75% lesenda Fótbolta.net spá því að það verði Selfoss sem hampi bikarnum undir ljósum Laugardalsvallar. Þetta er niðurstaða könnunar sem var á forsíðu.

Hvort liðið vinnur Fótbolti.net bikarinn?
75% Selfoss (913)
25% KFA (300)

Hér að neðan má sjá allar helstu upplýsingar fyrir leikinn

Bein textalýsing: Selfoss - KFA

Upphitanir stuðningsmanna:
   25.09.2024 10:10
Fríar rútuferðir og upphitun á Selfossi á föstudag

   26.09.2024 22:35
Stuðningsmenn KFA hita upp í Þróttaraheimilinu


Dómarar leiksins:
   25.09.2024 13:15
ÞÞÞ dæmir úrslitaleik Fótbolti.net bikarsins


Sverrir Mar rýnir í leikinn:
   26.09.2024 15:00
Sverrir spáir í Fótbolti.net bikarinn - „Mun ráða úrslitum í þessum leik"


Viðtöl:
   26.09.2024 14:45
Sneri heim 20 árum síðar - „Það er vilji fyrir því af beggja hálfu"

   26.09.2024 15:30
Bjarni með fiðring í maganum - „Mikill aðdáandi þessarar keppni"

   26.09.2024 16:00
Byggja upp á heimamönnum fyrir austan - „Gæti bjargað sumrinu alveg"

   26.09.2024 17:00
Tóku til eftir vonbrigði í fyrra - „Helvíti gaman að fá að spila á þjóðarleikvanginum"


Leið Selfoss í úrslitaleikinn
Selfoss vann 2. deildina í sumar og getur liðið fullkomnað tímabilið með því að vinna bikarinn á föstudagskvöld.

Selfoss vann 3-2 útisigur á Ægi í grannaslag í 32-liða úrslitum Fótbolti.net bikarsins þar sem Gonzalo Zamorano skoraði tvívegis af vítapunktinum eftir að Ægir komst tveimur mörkum yfir. Sesar Örn Harðarson skoraði sigurmarkið.

Í 16-liða úrslitum vann Selfoss 3-1 sigur gegn KFG með mörkum Nacho Gil, Gonzalo Zamorano og Alexander Clive Vokes.

Í 8-liða úrslitum vann Selfoss 3-2 gegn Haukum. Sesar Örn Harðarson skoraði tvívegis og Gonzalo Zamorano eitt.

Í undanúrslitum síðasta laugardag vann Selfoss svo 4-1 gegn Árbæ. Gonzalo Zamorano skoraði tvö mörk og hefur því skorað í öllum umferðum keppninnar í ár. Alexander Clive Vokes og Aron Fannar Birgisson skoruðu hin mörk Selfyssinga.

Leið KFA í úrslitaleikinn
Austfirðingar enduðu í fimmta sæti 2. deildar og náðu ekki því markmiði sínu að komast upp um deild.

Abdelhadi Khalok skoraði þrennu þegar KFA vann 6-3 sigur gegn ÍH í 32-liða úrslitum Fótbolti.net bikarsins. Julio Fernandes, Nenni Þór Guðmundsson og Arnór Pálmi Kristjánsson komust einnig á blað fyrir KFA.

KFA átti ekki í nokkrum vandræðum með Ými í 16-liða úrslitum og vann 6-0 stórsigur. Daníel Michal Grzegorzsson sem fæddur er 2009 kom af bekknum og skoraði. Jafnaldri hans Nenni Þór Guðmundsson lék svo sama leik þegar hann skoraði beint úr aukaspyrnu. Marteinn Már Sverrisson skoraði tvö í leiknum og þeir Julio Fernandes og Þór Sigurjónsson skoruðu sitt markið hvor.

Í 8-liða úrslitum vann KFA 3-1 útisigur gegn Augnabliki í Fífunni. Jacques Fokam Sandeu, Birkir Ingi Óskarsson og Eiður Orri Ragnarsson skoruðu mörkin.

Í undanúrslitum lenti KFA undir gegn Tindastóli en vann að lokum 2-1 sigur. Eiður Orri Ragnarsson og Marteinn Már Sverrisson með mörkin.
Athugasemdir
banner
banner