Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 27. október 2019 23:04
Brynjar Ingi Erluson
Icardi og Mbappe skoruðu tvö í sigri á Marseille
Angel Di Maria og Kylian Mbappe áttu góðan leik í kvöld
Angel Di Maria og Kylian Mbappe áttu góðan leik í kvöld
Mynd: Getty Images
Franska stórliðið Paris Saint-Germain vann frábæran 4-0 sigur á Marseille í frönsku deildinni í kvöld. Mauro Icardi og Kylian Mbappe skoruðu báðir tvö mörk.

Icardi, sem er á láni frá Inter, skoraði fyrstu tvö mörk leiksins en hann hefur verið heitur og er kominn með 7 mörk í öllum keppnum á tímabilinu.

Kylian Mbappe tók við keflinu í leiknum og skoraði tvö mörk áður en fyrri hálfleikur var búinn. Hann er með 8 mörk í öllum keppnum á tímabilinu.

Angel Di Maria lagði upp tvö mörk og hefur verið langbesti leikmaður PSG á tímabilinu. Hann er með 7 mörk og 8 stoðsendingar í fyrstu fimmtán leikjunum.

PSG er á toppnum með 27 stig og ætlar að stinga af í deildinni líkt og síðustu ár en næsta lið er með 19 stig.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner