Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
   sun 27. október 2019 22:16
Brynjar Ingi Erluson
Ítalía: Immobile skoraði sigurmark í blálokin
Ciro Immobile skoraði sigurmark Lazio
Ciro Immobile skoraði sigurmark Lazio
Mynd: Getty Images
Fiorentina 1 - 2 Lazio
0-1 Joaquin Correa ('22 )
1-1 Federico Chiesa ('27 )
1-2 Ciro Immobile ('89 )
1-2 Felipe Caicedo ('90 , Misnotað víti)
Rautt spjald:Luca Ranieri, Fiorentina ('90)

Ciro Immobile, framherji Lazio, reyndist hetja liðsins í 2-1 sigrinum á Fiorentina í Seríu A í kvöld.

Joaquin Correa kom gestunum í Lazio yfir á 22. mínútu áður en ítalska ungstirnið Federico Chiesa jafnaði metin fimm mínútum síðar.

Immobile gerði svo sigurmarkið á 89. mínútu og gat Lazio bætt við marki aðeins nokkrum mínútum síðar er liðið fékk vítaspyrnu. Luca Ranieri var þá rekinn af velli.

Felipe Caicedo fór á punktinn en klúðraði spyrnunni. Lokatölur 2-1 fyrir Lazio. Liðið er í 6. sæti með 15 stig en Fiorentina er með 12 stig í 9. sæti.
Athugasemdir
banner
banner
banner