Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 27. október 2019 23:23
Brynjar Ingi Erluson
Southampton gefur launin úr 9-0 tapinu
Leikmenn Southampton voru niðurlútir eftir leik
Leikmenn Southampton voru niðurlútir eftir leik
Mynd: Getty Images
Enska knattspyrnufélagið Southampton hefur ákveðið að gefa laun leikmanna og þjálfara frá 9-0 tapinu gegn Leicester á föstudag til góðgerðarmála.

Leicester vann stærsta útisigur í sögu ensku úrvalsdeildarinnar er liðið skoraði níu mörk gegn Southampton.

Bæði Jamie Vardy og Ayoze Perez skoruðu þrennu en Southampton hefur nú ákveðið að gefa öll laun leikmanna og þjálfara til góðgerðarmála.

Liðið hefur æft stíft um helgina til að laga það sem fór úrskeiðið á föstudag.

Leikmenn hafa keppst um að biðjast afsökunar á tapinu en Ralph Hassenhüttl, stjóri félagsins, segir að nú sé nóg komið af því að biðjast afsökunar og að nú þurfi menn að láta verkin tala.
Athugasemdir
banner
banner