Andri Fannar Baldursson byrjaði sinn fyrsta keppnisleik með Bologna í dag. Hann lék fyrri hálfleikinn í 2-0 sigri Bologna á Reggina í ítalska bikarnum.
Andri er átján ára gamall miðjumaður sem lék sinn fyrsta A-landsleik í september og sinn fyrsta U21 landsleik fyrir tveimur vikum.
Staðan var 0-0 í hálfleik en Bologna skoraði tvö mörk á tveggja mínútna kafla og er komið í 32 liða úrslit þar sem liðið mætir annað hvort Spezia eða Cittadella.
Annað lið úr Serie A lék einnig í dag. Sampdoria vann 1-0 sigur á Salernitana og er komið áfram.

🔥🔥🔥#BolognaReggina #CoppaItalia ⁰#WeAreOne pic.twitter.com/E5t3MDTUqD
— Bologna Fc 1909 (@BfcOfficialPage) October 27, 2020
Sampdoria 1 - 0 Salernitana
1-0 Antonio La Gumina ('54 )
Bologna 2 - 0 Reggina
1-0 Emanuel Vignato ('70 )
2-0 Riccardo Osolini ('72 )
Athugasemdir