Schalke er búið að finna arftaka Frank Kramer sem var látinn taka poka sinn á dögunum en Thomas Reis mun taka við liðinu fyrir helgina. Þetta kemur fram í þýskum miðlum.
Kramer, sem kom Schalke aftur upp í deild þeirra bestu á síðustu leiktíð, byrjaði þetta tímabil illa.
Liðið er aðeins með 6 stig í botnsætinu og er þá úr leik í þýska bikarnum ene Kramer var látinn fara á dögunum.
Thomas Reis, fyrrum þjálfari Bochum, mun taka við liðinu en hann verður kynntur fyrir leik Schalke gegn Freiburg um helgina.
Mörg lið í Þýskalandi horfðu til Reis í sumar en hann ákvað að vera áfram hjá Bochum. Hann var síðan látinn fara í september eftir slæma byrjun á tímabilinu.
Athugasemdir