Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   mið 27. nóvember 2019 18:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Fjórir munu byrja sinn fyrsta leik hjá United
Lee Grant byrjar á morgun.
Lee Grant byrjar á morgun.
Mynd: Man Utd
Ole Gunnar Solskjær hefur staðfest að á morgun, gegn Astana í Evrópudeildinni, verði fjórir leikmenn í byrjunarliði Manchester United í fyrsta skiptið.

Þá er búist við því að Axel Tuanzebe, Luke Shaw og Jesse Lingard byrji leikinn.

Þeir fjórir leikmenn sem Solskjær nefndi á blaðamannafundi í dag eru: Lee Grant, markvörður, Ethan Laird, Di Shon Bernard og Dylan Levitt.

Leikurinn hefst klukkan 15:50 og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner