Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 27. nóvember 2019 19:54
Aksentije Milisic
Sjáðu magnað jöfnunarmark Wass gegn Chelsea
Daniel Wass,
Daniel Wass,
Mynd: Getty Images
Nú var að ljúka leik Valencia og Chelsea í H riðli Meistaradeildar Evrópu þar sem leikar enduðu 2-2. Leikurinn var mikil skemmtun þar sem bæði lið sóttu mikið en einnig fór vítaspyrna forgörðum hjá heimamönnum.

Daniel Wass, leikmaður Valencia skoraði magnað mark er hann jafnaði leikinn í 2-2 á 82. mínútu. Wass fékk þá sendingu frá fyrirliðanum Daniel Parejo út á hægri kantinn og smellti hann boltanum í fallegum boga yfir Kepa og í stöngina og inn.

Heimamenn sóttu af miklum krafti undir lok leiks og ótrúlegt að þeim hafi ekki tekist að skora sigur markið.

Þetta magnaða mark hjá Wass má sjá með að smella hér.
Athugasemdir
banner
banner