Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
banner
   mið 27. nóvember 2019 22:16
Aksentije Milisic
Sjáðu markið: Lagleg utanfótarsnudda Lukaku á Martinez
Félagarnir fagna marki.
Félagarnir fagna marki.
Mynd: Getty Images
Inter lagði Slavia Prag að velli í Meistaradeild Evrópu í kvöld. Sigurinn var gífurlega mikilvægur og heldur Inter inn í baráttunni um efstu tvö sætin í F riðli.

Lautaro Martinez og Romelu Lukaku halda áfram að skora en þeir komust báðir á blað í kvöld.

Þriðja mark Inter var einstaklega glæsilegt. Lukaku og Martinez hafa náð frábærlega saman í vetur og það hélt áfram í kvöld. Á 88. mínútu vann Lukaku boltann af leikmanni Slavia Prag, tók eina snertingu áfram og átti síðan laglega utanfótarsnuddu beint á Martinez sem var mættur inn í teiginn og kláraði færið mjög vel á lofti.

Þetta smekklega mark má sjá hér.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner