Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 27. nóvember 2019 23:35
Aksentije Milisic
Van Dijk ósáttur - Fannst brotið á sér
Mynd: Getty Images
Virgil van Dijk, varnarmaður Liverpool, var ekki sáttur með ákvörðun Carlos del Cerro Grande, dómara leiksins, í marki Napoli í kvöld.
Liverpool og Napoli skildu jöfn 1-1 en Van Dijk telur að brotið hafi verið á sér í aðdraganda mark Napoli.

Dijk skallaði knöttinn en fékk Mertens inn í hliðina á sér og vildi Dijk meina að um olnbogaskot var að ræða. VAR skoðaði atvikið en ákvað að dæma ekki brot.

„Ég fór ekki niður að ástæðulausu. Ég vann boltann og persónulega fannst mér eins og Mertens vildi ekki reyna við boltann fyrst, svo hann snerti mig." sagði Dijk.

„Ég held að þetta sé brot, dómarinn átti ekki góðan dag en það er bara eins og það er.

Atvikið má sjá hér.


Athugasemdir
banner
banner
banner