banner
   mið 27. desember 2017 12:06
Elvar Geir Magnússon
KA boðar til fréttamannafundar - Hallgrímur kynntur?
Hallgrímur í landsleik.
Hallgrímur í landsleik.
Mynd: Getty Images
KA hefur boðað til fréttamannafundar á Akureyri í dag klukkan 16:30.

Viðfangsefni fundarins er ekki gert opinbert en líklegt má telja að verið sé að kynna Hallgrím Jónasson sem nýjan leikmann félagsins.

Hallgrímur er 31 árs miðvörður sem kvaddi danska félagið Lyngby á dögunum. Fjölskylda hans er flutt til Akureyrar.

Hallgrímur hefur verið í atvinnumennsku í Skandinavíu síðan 2009 en hann lék með Keflavík, Þór Akureyri og uppeldisfélaginu Völsungi áður en hann fór út. Hann á 16 landsleiki en hefur ekki verið inni í myndinni síðustu tvö ár.

KA hafnaði í sjöunda sæti sem nýliði í Pepsi-deildinni í sumar. Félagið hefur verið rólegt á leikmannamarkaðnum í vetur en þó fékk það til sín Sæþór Olgeirsson frá Völsungi.

Athugasemdir
banner
banner