Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 27. desember 2019 23:00
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Einkunnir Wolves og Man City: Traore bestur
Adama Traore fagnar marki sínu í kvöld.
Adama Traore fagnar marki sínu í kvöld.
Mynd: Getty Images
Það fór fram fjörugur leikur á Molineux vellinum í kvöld þegar heimamenn í Wolves tóku á móti Englandsmeisturum Manchester City.

Fimm mörk voru skoruð í leiknum og eitt rautt spjald fór á loft, það fékk Ederson.

Raheem Sterling skorði mörk Manchester City í 3-2 tapi, Adama Traore, Raul Jimenez og Matt Doherty skoruðu mörk heimamanna.

Hæstu einkunn hjá Sky Sports fékk Adama Traore sem skoraði eitt og lagði upp eitt í leiknum.

Einkunnir Wolves: Patricio (7); Dendoncker (6), Coady (7), Saiss (7); Doherty (8), Neves (8), Moutinho (8), Jonny (6); Traore (8), Jimenez (8), Jota (6).

Varamenn: Vinagre (6), Neto (7).

Manchester City: Ederson (3); Walker (6), Otamendi (6), Fernandinho (6), Mendy (5); De Bruyne (7), Rodri (7), Bernardo (7); Mahrez (6), Aguero (5), Sterling (8).

Varamenn: Bravo (6), Garcia (6), Gundogan (6).

Maður leiksins: Adama Traore.
Athugasemdir
banner
banner
banner