Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fös 27. desember 2019 17:00
Magnús Már Einarsson
Guardiola: Verður ein stærsta áskorunin að fylla skarð Aguero
Magnaður markaskorari.
Magnaður markaskorari.
Mynd: Getty Images
Pep Guardiola, stjóri Manchester City, segir að það verði ein erfiðasta áskorunin á ferlinum að fylla skarð Sergio Aguero þegar framherjinn yfirgefur félagið.

Hinn 31 árs gamli Aguero á eitt og hálft ár eftir af samningi sínum og óvíst er hvað tekur við hjá honum þá.

Talið er líklegt að Aguero fari og spili í heimalandi sínu Argentínu þegar hann lýkur ferlinum hjá City.

„Hann getur verið áfram en það veltur á líkamlegu formi hans og vilja hans," sagði Guardiola.

„Að fylla skarð hans verður ein stærsta áskorun mín því það er ekki hægt að finna mann í hans stað."
Athugasemdir
banner
banner
banner