Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   fös 27. desember 2019 15:30
Magnús Már Einarsson
Hodgson vill fá fjóra eða fimm nýja menn
Mynd: Getty Images
Roy Hodgson, stjóri Crystal Palace, vonast til að fá fjóra eða fimm nýja leikmenn til félagsins í janúar.

Crystal Palace er í 9. sæti í ensku úrvalsdeildinni eftir sigurinn á West Ham í gær en Hodgson segir að breiddin í hópnum sé alltof lítil.

„Við verðum að reyna að halda okkur í deildinni. Við erum með lítinn hóp og það er ekki hægt að biðja alltaf um að við náum fram kraftaverki," sagði Hogdson.

„Ef við komumst í gegnum jólin og formaðurinn getur látið mig fá fjóra eða fimm nýja leikmenn þá getum við staðið okkur gríðarlega vel."

„Við höfum rætt um þetta í langan tíma en kannski er þetta félagaskiptaglugginn þar sem við getum náð í þá. Fyrr eða síðar þurfum við að fá menn sem geta hjálpað okkur."

Athugasemdir
banner
banner
banner