Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 27. desember 2019 19:25
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Klopp um Firmino: Hugsa ekki um mörkin - Hugsa um mikilvægi hans
Roberto Firmino.
Roberto Firmino.
Mynd: Getty Images
Roberto Firmino skoraði tvö mörk í gærkvöldi þegar Liverpool heimsótti Leicester og hafði þar betur, 0-4.

Firmino hefur helst verið þekktur fyrir mikla vinnusemi á vellinum og hefur alltaf skorað nokkuð reglulega, en ekki raðað inn mörkunum. Klopp segist ekki hugsa um markskorun Firmino heldur er það vinnusemi hans sem skiptir mestu máli.

„Bobby (Firmino) er búinn að skora fjögur mörk í síðustu þremur leikjum. Fyrir það voru blaðamenn alltaf að minna mig á hvað hann skoraði lítið. Þegar ég hugsa um Bobby hugsa ég ekki um hversu mikið hann skorar, ég hugsa um mikilvægi hans á vellinum," sagði Klopp.

Liverpool er með 13 stiga forystu á toppi ensku úrvalsdeildarinnar og á þar að auki leik til góða. Næst fá þeir Wolves í heimsókn á Anfield á sunnudaginn.
Athugasemdir
banner
banner
banner