Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 27. desember 2019 18:13
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Liverpool spilar með HM merkið gegn Wolves
Heimsmeistarar félagsliða 2019.
Heimsmeistarar félagsliða 2019.
Mynd: Getty Images
Það var tilkynnt á heimasíðu Liverpool í kvöld að treyjur leikmanna liðsins verða merktar með HM merkinu í næsta deildarleik.

Liverpool vann Flamengo í úrslitaleik HM félagsliða og fær því að bera merkið á treyjum liðsins, ekki hefur verið leyft að bera merkið í deildarleikjum en þeir fengu hins vegar leyfi fyrir því að hafa það aðeins í einum deildarleik. Það er næsti deildarleikur sem er gegn Wolves á sunnudaginn.

Liverpool mun spila með HM merkið á treyjum sínum í Meistaradeildinni.

Eins og fyrr segir mætir Liverpool, Wolves á sunnudaginn, flautað verður til leiks á Anfield klukkan 16:30.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner