Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 27. desember 2019 13:30
Magnús Már Einarsson
Pogba lét alla leikmenn United fá armbönd - Gegn fordómum
Mynd: Getty Images
Paul Pogba, miðjumaður Manchester United, hefur látið útbúa armbönd til að leggja sitt að mörkum í baráttunni gegn kynþáttafordómum.

Pogba og liðsfélagar hans voru með armböndin á sér í upphitun gegn Newcastle í gær.

Á armböndunum stendur „Nei við kynþáttafordómum," og „Við erum öll eitt."

„Ég hef hugsað um að gera þetta í langan tíma," sagði Pogba um armböndin.

„Þetta er til að sýna öllum leikmönnum stuðning og sýna að svartir, hvítir, kínverskir eða hverjir sem þið eruð - það er einungis einn kynþáttur."
Athugasemdir
banner
banner